Sólstöðu hátíð Víkinga 14 til 17 júní 2012
Víkingahátíðin í Hafnarfirði er elsta, stærsta og mikilvægasta hátíð sinnar tegundar sem haldin er á Íslandi. Síðan 1995 hefur Hafnarfjörður verið leikvöllur víkinga sem hafa í gegn um tíðina sýnt flesta þætti menningar víkingaaldar, siglingar, handverk, matargerð, leiki, sagnalist, bogfimi, bardaga og tónlist. Hingað hafa komið og tekið þátt í því að heiðra minningu forfeðra okkar fjöldi listamanna hvaðanæva að úr Evrópu og Ameríku. Stundum hefur verið tilefni til að koma með óvænt innskot, stílbrot til að undirstrika enn frekar hvernig nútíminn og víkingar fortíðar geta verið saman í sátt og samlyndi og myndað sterka heild.
Allt frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að allt sé sem upprunalegast, að hátíðargestum finnist sem þeir hafi verið færðir þúsund ár aftur í tímann og þeir eins og fyrir einhvers konar kraftaverk séu staddir á sumarkaupstefnu. Skip frá útlöndum hefur komið til hafnar og verið tekið í naust, vörur bornar á land og kaupmenn hafa tekið upp varning sinn og stunda kaupskap. Það er mikið um dýrðir, tónlist, trúðleikar og dansmeyjar, mungát góð eins og segir í fornum bókum og borð svigna undan kræsingum. Síðan þegar allt virðist leika í lyndi kastast í kekki, menn berast á banaspjót og í góðsemi vega menn hver annan.
Á Víkingahátíðinni 2012 verður enn reynt að kynna til sögunnar nýja og ferska strauma, nýjar hetjur verða kallaðar til og reyndar ásamt gömlum kempum sem tryggir gestir hátíðarinnar þekkja. Alls má gera ráð fyrir að nú verði víkingar hátt á annað hundraðið íslenskir sem erlendir.
Fjörukráin
Strandgötu 55
220 Hafnarfirði
Borðapantanir
vikings@vikingvillage.is
Sími 565-1213
Hótelbókanir
booking@vikingvillage.is
Sími 565-1213