Vikingahátíðir
INVITATION TO THE VIKING MARKET IN HAFNARFJORDUR 2012

Nú líður að því að 16. hátíðin verði sett og að vanda verður hún fjölbreytt, dágóður hópur erlendra víkinga kemur til okkar, sumir í sextánda skiptið auk þess sem stór hópur vina okkar Færeyinga lætur sig ekki vanta, auk þess verður einn besti handverksmaður Grænlands með okkur á hátíðinni. Einnig má geta þessa að Víkingahljómsveitin Krauka en meðlimir hennar eru frá öllum norðurlöndunum og forsprakki þeirra er okkar maður Guðjón Rudolf.
Sögumenn, götulistamenn, handverksmenn sem bæði höggva í steina og tré eða berja glóandi járn, bardagamenn og bogmenn, svo eitthvað sé nefnt. Víkingahópurinn okkar Rimmugýgur og víkingahópurinn Hringhorni frá Akranesi, verða hér að vanda með sínar skemmtilegu bardaga og glímutök á hátíðinni og fjöldinn allur af víkingum víðsvegar af landinu hefur boðað komu sína hingað til okkar. Á þriðja hundrað víkingar verða á svæðinu þegar mest lætur og fjölhæfir eru þeir eins og sjá má af upptalningunni hér fyrir ofan.
Dansleikir eru fastir liðir hér meðan á hátíðinni stendur, Hjómsveitin Dans á Rósum, mun spila föstudags og laugardagskvöld en fimmtudags og sunnudagskvöld munu ýmsir víkingar sem á hátíðinni verða stíga á stokk og láta ljós sitt skína eins munu þeir hita upp fyrir dansleikina.
Í lokin vill ég þakka þeim sem stutt hafa þetta framtak í gegn um árin en lógóin þeirra eru hér, þeir hafa ekki brugðist og eru búnir að standa með okkur í gegn um öll árin, þeim verður seint fullþakkað.
Það er von mín að þessi hátíð eigi eftir að halda uppi merki víkinga og halda áfram að gleðja þá gesti sem á hátíðina koma.
Gleðilega Sólstöðuhátíð Víkinga.
Nánar...