Bóka herbergi

Komudagur: Nætur: Fullorðnir í herbergi:

Afbóka Stillingar

Fjaran – Valhöll Víkinga

HPIM2920Fjaran/Valhöll er opin fyrir matargesti alla daga frá kl. 18:00. Einnig opnum við fyrir hópa í hádeginu.
Húsið er byggt 1841 og er næstelsta hús Hafnarfjarðar og tekur um 36 manns í sæti á neðri hæð, þar er einnig kominn notalegur hornsófi og hátt borð með stólum. Uppi er vinaleg setustofa og hlýlegt herbergi þar innaf með sæti fyrir 18 matargesti. Hægt er að hafa innangengt af báðum hæðum yfir í Fjörugarðinn og því geta gestir Fjörunnar/Valhallar, notið alls þess sem Fjörugarðurinn hefur uppá að bjóða eða haft afgirt og verið útaf fyrir sig.

Fjaran/Valhöll er glæsilegur veitngastaður þar sem innréttingar og húsgögn eru gerð úr hundrað ára gömlum neftóbaks- og víntunnum. Veggirnir á neðri hæðinni eru skreyttir með málverkum af Hafnarfirði og af veisluborði goðanna, beint á veggina af listamönnunum Lukas Gucio Gordon og Elísu Ósk Viðarsdóttur.

Notalegur og öðruvísi veitingastaður sem vert er að heimsækja aftur og aftur.

Myndir úr Fjörunni


Borðapantanir:
Sími +354 565 12 13

Fax +354 565 18 91 

netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Fjörugarðurinn

web-joh108Fjörugarðurinn er opinn fyrir matargesti frá kl. 18:00-22:00 alla daga en þá lokar eldhús staðarins. Barinn er hins vegar opin til 01.00 öll kvöld vikunnar. Boðið er uppá okkar margrómuðu Víkingaveislur öll kvöld vikunnar, auk þess sem gestir geta valið af sérréttarseðli.

Nánar...

Fjörukráin
Strandgötu 55
220 Hafnarfirði

Borðapantanir
vikings@vikingvillage.is
Sími 565-1213

Hótelbókanir
booking@vikingvillage.is
Sími 565-1213

Vefhönnun: Hugsa Sér!