Bóka herbergi

Komudagur: Nætur: Fullorðnir í herbergi:

Afbóka Stillingar

Þorraveisla

ÞRUMANDI ÞORRAVEISLUR

 

Ó – pungarnir prúðir og bringukollar

Pottréttir, saltkjöt eða flatkökur hollar

Hákarlinn sterki með smá brennivíni

Hangikjötslæsa ásamt léttur gríni.

 

Þorrinn byrjar nú sem endranær á sjálfan bóndadaginn, föstudaginn 20.janúar og lýkur á þorraþræl, laugardaginn 18.febrúar.

Við verðum með okkar þjóðlega Þorrahlaðborð og Víkingasveitin syngur íslensk þjóðlög og aðra kviðlinga og leikur við hvern sinn fingur fyrir matargesti.

Að borðhaldi loknu munu Árni Johnsen, Ólafur Árni Bjarnason og Hörður G.Ólafsson sjá um að halda fólki við efnið fram eftir kvöldi. Enda vanir menn á ferð.

Þorrahlaðborðið með einum bjór og skemmtun á aðeins 6.700,-. Gerum tilboð fyrir hópa.

Þorrapakki – Gisting, bjór, þorraveisla og morgunmatur, allt á aðeins 11.900 fyrir manninn.

(aukanótt kr. 5.000,- á mann. Verðin miðast við tveggja manna herbergi.)

 

20.-21. og 27.jan. Ólafur Árni Bjarnason, Trúbador og Víkingur hefur leikinn á þorranum.

28.jan. Hinn síkáti eyjapeyji Árni Johnsen mun halda uppi þorragleði að hætti eyjamanna.

3.- 4. og 10.feb. Ólafur Árni, Trúbador og Víkingur skemmtir gestum að borðhaldi loknu.

11.feb. Árni Johnsen vitjar aftur lands og slær ekki slöku við í þorrastemmningunni.

17.feb. Ólafur Árni, gefur ekkert eftir, enda Víkingur mikill.

18.feb. Hörður G.Ólafsson trúbador slær lokatónana í Þorragleði Víkinga að þessu sinni.

Fjörukráin
Strandgötu 55
220 Hafnarfirði

Borðapantanir
vikings@vikingvillage.is
Sími 565-1213

Hótelbókanir
booking@vikingvillage.is
Sími 565-1213

Vefhönnun: Hugsa Sér!